:: ÉG :: |
Nafn:Sísí
Fædd:04.12.1982
Stjörnumerki: Bogmaður
Staður:Sarpsborg/Norge
Litur: Bleikur (as u can see)
Matur: Taco,
Tónlist: Björk,Sigurrós,
Bowie,Radiohead,
Portishead,Pixies
og ýmislegt annað,
Lag: Where is my mind(Pixies)og No surprises (Radiohead)
meðal annars,
Myndir: Nightmare on Elm street myndirnar,
Carrie, The Shining,
The exorsist, Star Wars
og fullt annað.
|
|
Um helgina gerðist merkilegur atburður, í fyrsta skipti í sögu noregs var kona(22) kærð fyrir að nauðga manni(30). Hann var sofandi á sófa í einhverju partýi og hún nauðgaði honum meðan einhver vinur hennar tók myndir af þessu öllu saman, sá var kærður fyrir meðvirkni. Þetta hefur náttúrulega vakið miklar umræður hér í landi og í flestum sjónvarps og útvarpsþáttum þessa dagana er þetta aðal umræðan. Og það sem mér finnst allra verst er að flestum finnst þetta bara fyndið, og þá sérstaklega karlmenn sem segja að hann hefði bara átt að liggja og njóta !!! það er búið að gera alveg þvílíkt lítið úr þessu í fjölmiðlum og ég vorkenni þessum manni svo! Afhvjeru finnst fólki að karlemenn eigi eitthvað frekar að sætta sig við að vera nauðgað? ég meina lög eru lög og það stendur hvergi að það sé í lagi að nauðga körlum en ekki konum!! Ég ætla rétt að vona að þessi stelpa verði dæmd fyrir nauðgun og verði með það hangandi yfir sér það sem eftir er!! Eftir þennan atburð var gerð könnun þar sem spurt var hvort að Karlmenn ættu eða myndu kæra nauðgun. flestir karlar svöruðu að þeir myndu ekki kæra ! og all margir sögðu að þeir myndu ekki finnast þeir hafa verið lítilækkaðir ef kona myndi nauðga þeim!! En konur aftur á móti svöruðu að þeir ættu að kæra! ég meina halló!! nauðgun er nauðgun sama hver nauðgar og hverjum er nauðgað !! eða hvað finnst ykkur?????
* * * * * * * * *
|
|