| :: ÉG :: |
Nafn:Sísí
Fædd:04.12.1982
Stjörnumerki: Bogmaður
Staður:Sarpsborg/Norge
Litur: Bleikur (as u can see)
Matur: Taco,
Tónlist: Björk,Sigurrós,
Bowie,Radiohead,
Portishead,Pixies
og ýmislegt annað,
Lag: Where is my mind(Pixies)og No surprises (Radiohead)
meðal annars,
Myndir: Nightmare on Elm street myndirnar,
Carrie, The Shining,
The exorsist, Star Wars
og fullt annað.
|
|
Life's a Bitch, then you die !
AAARRRGGGGG !!!! Þetta er ömurlegasta dagur þessarar mánaðar það er alveg víst !! það gengur allt á afturfótunum hjá mér !! ekki nóg með að lappirnar séu farnar að gefa sig þá er heilinn farinn að gefa sig líka. og dagmamman líka !!!
ég er alltíeinu orðin svo ferlega gleymin að ég get helst ekki farið út án þess að hengja á mig merkimiða með nafni og adressu svo ég rati aftur heim.
Svo er þessa blessaða grindagliðnun farin að hafa einhverja skrítna fylgikvilla, ég missa stundum máttinn í örðum fætinum, bara svona uppúr þurru!! og mér er nú bara hætt að lítast á blikuna. ég sat nefnilega við stýrið áðan, bíllinn var í gangi og í gír en ég var með fótinn á kúplingunni, svo ætla ég að hagræða mér eitthvað og viti menn löppinn bara hætti að virka og ég rann af kúplinguni, bíllinn náttla hoppaði áfram og á bílinn fyrir framan !!! og hann beyglast smá. ég var náttla alveg í rusli og frekar smeik við þetta, ef þetta heldur svona áfram þá er kannski ekkert voða gáfulegt að vera að keyra, en ég er háð bílnum til að geta komist í vinnuna.
Svo er endalaust umferðaöngþveyti á leiðinni heim. Svo þegar ég er loksins komin til dagmömmunar þá segist hún þurfa að tala við mig. Þá var málið að hún ætlaði að hætta að hafa börn eftir kl 15:00 á daginn !! vinnudagurinn hjá henni verður svo langur vegna þess að sum barnana eru komin kl 6 á mornanna. ég er að vinna frá 8 til 16 og Ari frá 6 til 17-18, þannig að núna vitum við ekkert hvað eigum að gera ! ég verð bara að hætta að vinna eða eitthvað, Ari hefur ekki sjéns að vera kominn heim fyrr en í fyrsta lagi fimm. ég veit ekki hvernig við eigum að leysa þetta, en þetta virðist allt eitthvað svo ferlega vonlaust. Hún var líka að hækka sig í verði fyrir viku síðan. Þannig að ég er búin að skemmeleggja bíl sem ég þarf að punga út fyrir (eða tryggingafélagið) borga dagmömmuni meira, en get samt ekki unnið fyrir peningunum !!!
Svo sef ég ekki rassgat, labba einsog flóðhestur með gyllinæð og hormónarnir eru að gera mig geðveika !!! Þannig að málið þarf ekkert að vera svo alvarlegt, ég er bara viðkvæm þessa dagana.
sorrý varð bara aðeins að pústa !!
en einsog hún Hjödda Pönk segir "brostu, morgundagurinn verður verri"
* * * * * * * * *
|
|