:: ÉG :: |
Nafn:Sísí
Fædd:04.12.1982
Stjörnumerki: Bogmaður
Staður:Sarpsborg/Norge
Litur: Bleikur (as u can see)
Matur: Taco,
Tónlist: Björk,Sigurrós,
Bowie,Radiohead,
Portishead,Pixies
og ýmislegt annað,
Lag: Where is my mind(Pixies)og No surprises (Radiohead)
meðal annars,
Myndir: Nightmare on Elm street myndirnar,
Carrie, The Shining,
The exorsist, Star Wars
og fullt annað.
|
|
Jæja þá er slenið bara alveg að drepa mann. Ég er barasta aftur veik ! alveg að verða brjáluð á þessu.
Annars er allt gott að frétta héðan úr ólátagarði. Allt að vera vitlaust náttúruelga. Peyinn búinn að vera mikið inni útaf veikindum þannig að hann er einsog hann sé með rakettu í rassinum útum allt hús og uppum alla veggi. vonandi fer ég að vera keyrsluhæf bráðum svo ég geti keyrt hann á gæsló, hann er komin með hundleið á að hanga svona heima greyið.
Svo kom barasta smá snjór í dag !! það hefur lítið sem ekkert snjóað hér í vetur, bara verið 7 stiga hiti !! einhver gróðurhúsaáhrif hér á fer ??? vanalega er alveg -15 minnst á þessum tíma !
Annars var litla ljósið í 6 mánaða skoðun í dag og það gekk alveg rosalega vel. Hún er orðin 7430 gr. og 67 cm !! þannig að hún hefur stækkað alveg rosalega. Hjúkkan og læknirinn eru alltaf jafn hissa á því að hún hafi fæðst svona lítil og hafi náð sér á strik svona fljótt. Hún sýndi líka sínar bestu hliðar, tók nokkrar veltur og spjallaði voða mikið og montaði sig. Og brosti svo bara og hló og bræddi öll hjörtu, hún er svo yndisleg þessi elska :) *mont*
* * * * * * * * *
|
|