:: ÉG :: |
Nafn:Sísí
Fædd:04.12.1982
Stjörnumerki: Bogmaður
Staður:Sarpsborg/Norge
Litur: Bleikur (as u can see)
Matur: Taco,
Tónlist: Björk,Sigurrós,
Bowie,Radiohead,
Portishead,Pixies
og ýmislegt annað,
Lag: Where is my mind(Pixies)og No surprises (Radiohead)
meðal annars,
Myndir: Nightmare on Elm street myndirnar,
Carrie, The Shining,
The exorsist, Star Wars
og fullt annað.
|
|
Gamla orðin rugluð....
Jæja þá held ég að ég sé endanlega orðin rugluð... Í fyrstalagi þá er það búið að gerast 4x að það er ekkert heitt vant þegar ég er að fara í sturtu á mornanna. Tékka svo á hitakútnum og þá er búið að taka hann úr sambandi !!! Það eru bara ég og Ágústa Arís sem ganga um íbúðina og einar með aðgang. Hún kemst ekki að þessu... þetta er bakvið kútinn inní kompu hún á ekki sjens... og ég veit það að ég er ekki að taka hann bara úr sambandi... hehe Fyrstu 2 skiptin hristi ég bara hausinn og var ekki alveg að fatta.. svo þegar þetta gerðist í 3ja skipti fór mér ekki að standa á sama. En svo í 4. skipti þá fannst mér þetta meira en grunsamlegt. Ég spurði svo Marwel (húseigandinn sem býr uppi) hvort þau hefðu nokkuð verið að gera einhverjar framkvæmdir sem kröfðust þess að kúturinn yrði tekinn úr sambandi og ég kannski ekki verið heim og þau farið niður og tekið hann úr sambandi. En svo var ekki, þau eru ekki einu sinni með lykil að íbúðinni ! ég er með eina settið, það var settur nýr lás þegar ég flutti inn. Marwel fannst þetta frekar spúkí og sagði bara "Sísí ekki segja mér að einhverjir draugar hafi elt þig hingað!" hehe Ég ætla að gera frekari ransóknir á þessu og prófa að læsa þessari kompu... mig grunar nefninlega að ég sjálf standi að verki þegar ég tek mína svefngöngu á nóttunni... hehe Alveg kominn tími til að þess svefnganga fari að vaxa af mér... orðið frekar þreytandi..
Já og svo var ég að taka úr vélinni og setja í þurkarann áðan. Ég var búin að setja allt yfir í þurkarann og svo kallaði Ágústa Arís á mig og ég fór fram að tala við hana. Fór svo aftur inn á bað til þess að klára en rankaði svo við mér þegar ég var búin að tína allt úr þurkaranum aftur yfir í þvottavélina !!! OHH... þoli ekki þegar ég fer á svona autopilot og bara geng um húsið einsog hauslaus hæna.. haha hefði ekki geta gert mér erfiðara fyrir nema þá kannski hella drullu ofan í vélinna líka svo ég þyrfti örugglega að þvo þetta allt saman aftur..
Svona er maður farinn að kalka bara 24 ára og arkandi um allt í svefni...
Búin að setja nýjar myndir inná síðuna hjá krökkunum, endilega kíkið. Arna Hlín búin að vera hjá okkur í mánuð og bara búið að vera gaman. Við söknum hennar rosalega.
Ágústa Arís byrjuð á gloríu aldrinum.. alltaf að gera einhverja skandala. Ég og Arna Hlín vorum með hana í verslunarmiðstöð og lillan kúkaði pínu í sig... ekki nóg með það þá fór ég með hana inná hjólastólaklósett og tók hana úr brókinni. Langað ekkert sérlega að taka með mér kúkabrók heim til að þvo þannig að ég henti henni bara í ruslið.. hehe Fröken Aradóttir var í kjól og ss engri brók. Við ákváðum þess vegna bara að drífa okkur heim. En þegar við komum út af klósettinu stendur mín svona passlega fyrir framan ALLA og dregur upp kjólinn yfir haus og gólar svo á norsku "MAMMA ! hvar eru nærbuxurnar mínar?!" Arna Hlín var fljót að stökkva á hana og draga kjólinn niður aftur.. ég greyp hana og hjóp með hana útí bíl.. hehe fólki fannst þetta greinilega frekar fyndið. En við systur urðum frekar svona skömmustulegar.
Svo var ég útí búð með hana í seinustu viku og kallinn fyrir framan var að kaupa sér eitthvað svona karlablað (FHM eða eitthvað) með svona brjóstamynd framaná. Mín sendur við færibandið og bendir á blaðið og spyr svo karlinn "varst þú að kaupa þetta?" "já" svarar maðurinn. Svo bendir hún á brjóstin á myndinni og segir "þetta er brjóst" "já" svarar maðurinn. Svo heyrist í minni "Mamma mín er líka með svona" maðurinn starir þá nátturulega beint á brjóstin á mér, ég horfði á hann þangað til hann leit upp.. og greyið varð náttúrulega einsog auli, eldroðnaði alveg og strunsaði út. hehe þetta voru nú svolitlar ýkjur hjá henni dóttur minni.. svona svakalega bobbinga er ég nú ekki með... hehe
Afhverju getur hún ekki talað íslensku þegar hún þarf að skandalast... þá væri þetta svo miklu betra... hehe þá væri það bara ég sem myndi skilja hana... hehe
* * * * * * * * *
|
|